Handan við allt sem heimur telur, liggur lítið bú
smávaxin kona situr og prjónar, kann heklið sú
prjónar og prjónar, saumar og saumar
milli handtaka, að sjálfri sér viskuorði laumar
Enginn sem heyrir né sér, því hún ein í heimi er
enginn dirfist að líta í bakgarð annan, en heima hjá sér
-
Ég held að fáir geti verið mér ósammála þegar ég segi að sköpun, hvaða form sem hún kynni að taka, sé yndislegust þegar hún er án átaks. Þegar maður tekur ekki meðvitaða ákvörðun um að skapa eitthvað, heldur þegar sköpunin þarf ekki hvatningu, hún er þegar til staðar. Hún bíður einfaldlega eftir því að einhveri taki við henni og geri hana að raunveruleika. Πλάτων ((Plátōn)Plató) setti fram þá kenningu að allt ætti sér frummynd. Hver steinn og hvert strá ætti sér sína fyrirmynd á tilteknum stað og að veruleika-myndun hans í okkar heimi ætti sér uppskrift. Hann vildi þó meina að það væri til grunn-frummynd af hverju fyrirbæri, eins og að það væri til ein grunnfyrirmynd stólsins. Ég á við þess skonar sköpun. Þegar sköpunarverk tekur á sig mynd án fyrirhafnar og án þess að raunveruleg hugsun eða umræða við mann sjálfan eigi sér stað. Það er svo yndislegt að þurfa ekki að ákveða að skapa eitthvað, því stundum er það þannig að loka-eintakið verður of þvingað ef listaverkið er of úthugsað:"Nú ætla ég að skrifa niður Vals í Eb-dúr." Það er svo þægilegt að setjast niður án fyrirætlana um að skapa eitthvað. Heldur bara að leyfa þeirri rödd sem manni hefur verið gefin að tala í gegnum sig og í raun hafa sinn frjálsa vilja. Stundum er það ágætt að hugsa ekkert alltof mikið um það sem manni er gefið að skapa. Innsæi og upprunalegur innblástur er oft nóg til að verða valdur að listaverki sem gefur manni sjálfum, og vonandi öðrum ánægju.
Það er líklega vegna þess sem ég er hrifinn af spuna-tónlist þ.á.m. jazz. Það er eitthvað svo heillandi við list sem er sköpuð án tillits til mistaka og misfella. Það er kannski hægt að líkja því við lífið sjálft. Blóm vex eins og hennar er von og vísa. Þegar hún er fullvaxin tekur hún ekki skyndilega upp á því að breyta einu laufi eða eitthvað slíkt. Plantan er eins og hún er og allt sem vex er yndislegt.
Sumir halda því fram að þeir séu ekki listamenn. Það finnst mér fljótfærnislega sagt. Allir sem lifa eru listamenn því list er það að skapa, og þótt að flest okkar lifa kannski reglubundu lífi er alltaf eitthvað óvænt sem við þurfum að kljást við. Það er einmitt grundvallandi takmark listarinnar. Að takast á við það óvænta.
Kúnstin er að leyfa lífinu að vera vaxandi blóm. Það er alltaf hægt að bæta við doppu hér eða lit þar. Það er aldrei of seint að vaxa, aldrei of seint að horfast í augu við það óvænta og þroskast eftir baráttuna.
Lífið er áskorun, takstu á við hana og úr áskoruninni verður takmark sem hægt er að ná. Og takmörk, draumar, er það sem mótar líf nútíma-mannsins.
Þórður Sigurðarson
Friday, March 19, 2010
Monday, March 8, 2010
London og læmingjar
Afvhverju í ósköpunum heitir blogg ekki BLOBB! Það er mikið skemmtilegra orð og gefur manni betri ástæðu til að skrifa innihaldsminni færslur. Hugsið ykkur, ef að ég skrifaði á facebook:" Ég var að skrifa nýtt blobb" Lífið væri svo skemmtilegt. Þá gæti ég skrifað eftirfarandi og það væri réttlætanlegt blogg ef að blogg væri BLOBB:
-Start of BLOBB- "Einu sinni á maí kvöldi, austur í Rangárvallasýslu, gerðist í pínulítilli lægð, svoldið sem fáir vita" End of BLOBB-
Stundum er betra ef eitthvað er minna, svona eins og .... símar.
Auðveldara að lesa, mjög torskilin merking og því meira rými gefið fyrir persónulegar vangaveltur um hugarástand viðkomandi skrifenda. Orðið BLOBB gefur til kynna að það sé frekar handahófskennd hugmynd, eitthvað sem erfitt er að henda reiður á. Eitthvað torskilið og spennandi. Svolítið eins og samtal neðansjávar, í sundlaug. Maður heyrir ekki nákvæmlega það sem hinn aðilinn segir en það er skemmtilegt því að allt er svo öðruvísi og framandi!
Úr einu í annað, eins og svo oft áður er ekki eitthvað eitt sérstakt sem mig langar að deila með ykkur, fannst bara kominn tími til, eftir hálfsmánaðar-hlé, að ljúka upp hurðum reynslu minnar. Ég fór til London að heimsækja systur mína og mág minn. Þetta var án efa besta vetrarfrí ævi minnar, og mjög líklega huggulegasta utanlandsferð í manna minnum (það er að segja mínum eigin). Ég hélt af stað í hið langa ferðalag yfir Norðursjó. Því það kemur á óvart að ferðin til Bretlands tekur tiltölulega lengri tíma en ferðin heim til Íslands. Aðalástæðan er sú að flugvöllurinn sem hýsir Ryan Air í Noregi er á suður-Noregi. Af þeim sökum þurfti ég að taka lest til Osló, og svo aðra lest til Sandefjord. Það er sirka fimm tíma ferðalag. Svo er flugtíminn tæpar tvær klukkustundir. Mér fannst vegalengdin milli Noregs og Bretlands ekki svo löng í huganum. En þegar til Stansted var komið þurfti ég að taka lestina til Liverpool Station þar sem Elli tók á móti mér í myndarlegri ullarpeysu og hatt. Rúta heim á Graham Road og þar beið óþreyjufull og húsmóðurleg systir mín eftir mér og Unnur systir Tryggva kærasta Kötlu, sem var á leiðinni til Brasilíu á sunnudeginum. Dagarnir sem fylgdu voru fullir af ævintýrum og góðum mat. Við fórum meðal annars til Camden sem er ævintýralegur sögufrægur markaður í London sem selur allt frá hasspípum til taílenskra teppa. Svo skoðuðum við Brick lane sem er trendy gata með fjöldann allan af búðum og tilheyrandi. Við fórum í lautarferð í Hyde park í sumarsól og hita og héngum á Ray´s jazz Café, sem bauð uppá frábært Latté og bananakökur til að deyja fyrir. Þetta var yndisleg ferð bæði fyrir bragð- og sjónlaukana Borðaði amerískan diner-mat, indverskan “Go-away” mat :P og víetnamskan heimilimat. Takk Saga og Elli fyrir frábæran tíma!! Þessu verður seint gleymt!
Allt að gerast, fullt af verkefnum. Sit núna og skrifa, hlusta á Fleetwood Mac og drekk kaffi. Framundan er hljómfræði, orgel-undirbúningur, tónleikaferðalag, heimspeki, söngleikja-tónleikar, hlaup og svefn (vonandi).
Bið að heilsa ykkur, páskafríið nálgast óðfluga og allt er gott!
Kveðja, Þórður Sigurðarson
Subscribe to:
Posts (Atom)
