Sæl verið þið öll! Þessi skrif verða öll tileinkuð ferð minni til Noregs og ævintýrum sem þar eiga (vonandi) eftir að eiga sér stað. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig lífi mínu verður háttað þar í landi og ekki heldur hvort að ég verð í stöðugu netsambandi. Af þeim sökum veit ég ekki hvort skrifin verða regluleg eða aðeins minna regluleg. En mig langar að deila með vinum mínum og vandamönnum þeim verkefnum og þeim áskorunum sem á fjöru mína rekur. Ég fer út 21. ágúst og þá hefst hið síunga ævintýri Þórðar Sigurðarsonar. Ævintýri lífsins. Ég vona eins og hver rithöfundur að einhver lesi þessa texta sem birtast hér og hafi gagn og gaman að.
Með von um gleði og hamingju,
Þórður Sigurðarson
Saturday, August 8, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

VEII gaman! :)
ReplyDeleteHalló elsku bróðir! Gaman að þú ætlir þér að halda úti bloggi. Ég bið þig að skrifa um allt og ekkert og allt þar á milli, svo við getum fylgst með þér... Vona að þú hafir það gott og næstu dagar verði ævintýralegir! Kv Katla sis
ReplyDeleteGaman, blessaður skrifaðu reynslusögurnar á bloggið okkur til ánægju.
ReplyDelete